Friðhelgisstefna (Privacy Policy)

VE travel ehf. hefur sett sér stefnu varðandi meðferð persónuupplýsinga til að tryggja að félagið fari eftir lögum um persónuvernd og meðhöndlun persónugreinanlegra gagna. Starfsmenn okkar eru skuldbundnir til að fara með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og fá reglulega þjálfun í gagnavernd og gagnaöryggi auk þess sem kerfin okkar eru stillt á þannig að gögnin eru örugg. Hér á eftir útskýrum við hvernig við verndum gögnin þín og hvaða þýðingu það hefur fyrir þig.

Fyrirspurnir
Allar fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á netfangið personuvernd (hjá) vikingtours.is.

Vefkökur
Vefkökur (e: „cookies“) eru litlar textaskrár sem margar vefsíður nota, þar á meðal okkar. Vefkökur eru búnar til þegar þú heimsækir vefsíðurnar og netþjónninn okkar setur þær á harða diskinn þinn. Kökurnar okkar innihalda ekki persónuupplýsingar og aðrar vefsíður geta ekki lesið upplýsingar sem eru geymdar í kökum frá okkur. Að auki geta aðeins okkar netþjónar lesið kökurnar frá okkur en ekki annarra vefsíðna.
Flestir vafrar eru stilltir á að taka sjálfvirkt við kökum. Viljir þú ekki njóta ávinningsins af kökum getur þú afvirkjað þennan eiginleika í vafranum þínum. Þú getur líka skoðað vefsíðuna okkar án þess að nota kökur, en það getur takmarkað suma eiginleika.

Kökur eru yfirleitt notaðar til þess að notandi þurfi ekki að slá inn notendanafn eða lykilorð eða breyta stillingum í hvert sinn sem hann heimsækir vefsíðu sem hann hefur áður skráð sig inn á.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum netvöfrum þannig að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig er hægt að eyða kökum með einföldum hætti.

Upplýsingar á heimasíðu Microsoft um hvernig hægt er að eyða kökum er hægt að finna hér og hér er hægt að finna hvernig þú eyðir kökum í Chrome.

Vefmælingar
VE travel ehf. notar Google Analytics til vefmælinga á vefjum sínum. Við hverja komu inn á vefinn okkar eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir o.fl. Engar tilraunir eru eða verða gerðar til að komast yfir frekari upplýsingar um hverja komu eða tengja saman við persónugreinanlegar upplýsingar.

Áframsending persónugreinanlegra gagna til þriðja aðila
VE travel ehf. deila ekki persónugreinanlegum gögnum um þig til þriðja aðila. Við skuldbindum okkur til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og munum ekki miðla á nokkurn hátt upplýsingum sem skráðar hafa verið í ofangreindum tilgangi til þriðja aðila án þín samþykkis eða í kjölfar dómsúrskurðar.

Með notkun okkar á Google Analytics sendum við hins vegar frá okkur ópersónugreinanleg aðgangsgögn, þ.e. hvenær síðan var heimsótt, hversu lengi og hvaðan og þess háttar er greint fyrir tölulegar upplýsingar. Þetta notum við svo til að betrumbæta vefinn okkar. Lesa má nánar um Google Analytics hér.

Afturköllunarréttur
Þú hefur rétt á að afturkalla samþykki þitt fyrir notkun Opinna Kerfa hf. á persónuupplýsingum þínum.
Þú getur hvenær sem er farið fram á að VE travel ehf. breyti, hætti að nota eða eyði persónugreinanlegum gögnum um þig.
Ef þú ert skráður notandi, bjóðum við þér að skoða persónugreinanlegu gögnin þín sjálfur og eyða þeim eða breyta að vild, en þú getur einnig haft samband við okkur. Við viljum þó taka það fram að við eyðum ekki gögnum án þess að fá það staðfest að þú ert þú.

Hlekkir
Vefsíðurnar okkar geta innihaldið hlekki á aðrar vefsíður. Þótt við gerum okkar ítrasta til að athuga þessa beinu hlekki, berum við ekki ábyrgð á efni vefsíðanna sem við hlekkjum á. Að auki berum við enga ábyrgð á efni vefsíðna sem hlekkja á okkar vefsíðu.

SSL skilríki
Vefir okkar eru með SSL skilríki til að gera samskipti og gagnaflutning í gegnum þá öruggari.
SSL skilríki veita vörn fyrir svokölluðum „millimannsárásum“, en með þeim geta óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum síðuna, eins og t.d. lykilorð eða greiðslu- og bankaupplýsingar. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar, og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað, á öruggan máta.

Takmarkanir
VE travel ehf. áskilur sér rétt til að breyta þessum reglum um gagnavernd hvenær sem er í samræmi við ákvæði gagnaverndarlaga. Við breytingu þá þarft þú að samþykkja skilmálana aftur.


VikingTours™ er fjölskyldu rekin ferðaskrifstofa með mikla reynslu og vitnesku um Vestmannaeyjar. Við bjóðum upp á mikið af úrvali af ferðum og er aðal merki okkar leiðsögn að hætti heimamanna. Leggjum áherslu á að tengja staðreyndir við skemmtilegar sögur af fólkinu í eyjum. Við bjóðum upp á margs konar upplifun frá sjó og landi, bíl, rútu og göngur. Látum mikilfenglega náttúru njóta sín og tengjum söguna og upplifun fólksins saman. Fjölbreytt fuglalíf, eldgosasaga er eitthvað sem hefur heillað mikið og einbeitum við okkur að því að hvort sem þú ert í hópi eða einstaklingar á ferð þá reynum við að uppfylla hinn fullkomna dag í eyjum. Sjáumst í sumar í eyjum.
VikingFerðir™ - VE travel ehf.
Heiðarvegi 59 - 900 Vestmannaeyjum
Tel. +354 488 4800
info@vikingtours.is
© Copyright 2020 - 2022 VikingFerðir™ VE travel ehf. - All Rights Reserved  - Friðhelgisstefna - Powered by Zix ehf.
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram