Þessi bátsferð tekur um einn og hálfan tíma. Siglt er í kringum Vestmannaeyjar og nálægt öðrum smáeyjum í kringum Heimaey. Þau eru mikilfengleg fjöllin og að sjá margbreytileikann í bergmynduninni er alveg einstakt. Á meðan á siglingu stendur fer leiðsögumaðurinn yfir söguna og segir skemmtilega frá hverjum stað. Sagt er frá upphafi eyjanna, Eldgosinu 1973 og hversu mikil áhrif það hafði á Heimaey. Sagt er frá öðrum smáeyjum, Surtsey og fuglalífinu í eyjum ásamt mörgu öðru sem kemur fyrir í ferðinni. Báturinn heitir Teista og er mjög góður bátur til að sigla í kringum eyjuna, hún tekur um 50 manns. Hægt er að vera bæði úti og innandyra.